Apríl 2026
Daman - 20. May 2026
Heyrðu já apríl var mjög skemmtilegur mánuður!
Byrjum á því að Sara og Reynir komu til okkar 31.mars en þau höfðu flogið til Köben 2 dögum fyrr. Þau komu með lestinni til okkar en það var í raun smá tvísýnt þar sem að elsku litla systir mín hafði fengið matareitrun eða eitthvað álíka og verið rúmliggjandi allan daginn áður. En hún var hetja og meikaði rúmlega 3 tíma lest til þess að koma til okkar!
Við bjuggum um þau í stofunni á tvíbreiðrivindsæng en við hugsuðum að það væri skemmtilegra heldur en að annað þeirra væri í sófanum og hitt á vindsæng. Eftir að þau lentu hjá okkur var bara smá chill en svo löbbuðum við með þeim niður í bæ til að skoða og njóta veðursins en við fórum m.a. á Salling rooftop. Við Daníel hoppuðum svo heim til þess að elda og gefa þeim smá tíma til að skoða bæinn en klukkan var orðin svo margt að þau komu bara heim stuttu seinna. Þá var kvöldið bara tekið í chill enda þreyta eftir ferðalagið og Sara enn að ná sér.
1.apríl fórum við Sara og Reynir niður í bæ að kíkja í búðir á meðan Daníel var að vinna. Við fórum svo á Aarhus streetfood þar sem ég fékk mér franskar toppaðar með kjúlla og ég hugsa reglulega um þessar franskar og hef fengið mér þær 2x síðan þá, þannig ég mæli mjög mikið með. Þegar Daníel var búinn að vinna fórum við út að borða á Frankies í pizzu og svo í pílu á Skor.
2.apríl að þá var frídagur þannig við vorum bara öll heima og byrjuðum daginn rólega, síðan fórum við á spilakaffihús og við áttum borð í 2 tíma en það var svo gaman þannig að við enduðum á að lengja tímann og vorum þar í 4 tíma haha. Eftir það fórum við á Aros safnið pínu tipsy þannig það var extra áhugavert. Við borðuðum svo bara heima og spiluðum aðeins og svo þurftu þau því miður að pakka þar sem þau áttu rútuna klukkan 10 morguninn eftir. Lestarkerfið er búið að vera frekar tregt undanfarið og alltaf eitthvað bras eða framkvæmdir, þess vegna þurftu þau að taka rútuna. Alltaf leiðinlegt að kveðja en mjög þakklát fyrir að þau komu til okkar og fyrir samveruna!
Við vorum samt ekki lengi ein í kotinu ef svo má segja því næstu gestir voru mættir til Aarhus. Þau voru samt ekki að gista hjá okkur þannig við hittum þau bara daginn eftir. Þetta voru ss systir pabba hans Daníels, hún Dóra og synir hennar Atli og Kári. Við byrjuðum daginn á því að fara í búð sem Kára er búið að langa að fara í síðan um jólin af því að þá sýndi Daníel honum vefsíðuna og allt Harry Potter dótið þar. Hann endaði svo á að kaupa sér Lucius Malfoy sprotann en hann er í raun stafur sem inniheldur sprota og er meira en meter á lengd... Við splittuðum síðan liði þar sem ég fór með Kára í göngutúr, Daníel fór með Atla í gítarbúð og Dóra og Hafdís (sem hafði komið með lestinni) kíktu aðeins í búðir. Við borðuðum síðan hádegismat á Aarhus streetfood þar sem ég fékk mér aftur áðurnefndu franskarnar og við fórum síðan heim til okkar þar sem ég var búin að preppa vöfflur og snickersköku fyrir kaffið.
Á páskasunnudag vorum við bara 2 að chilla fyrriparinn og borða páskaegg. Um kvöldið buðum við Dóru og strákunum í lambakjöt (því miður danskt) og desert en það sem ég er eiginlega viss um að hafi staðið upp úr hjá strákunum var óáfengi Mojitoinn sem Daníel gerði fyrir þá. Svo var reyndar Kári mjög glaður þegar hann fékk að naga beinið haha.
Á mánudeginum fórum við saman í fótbolta uppi á leikvellinum hérna ofar í götunni þar sem að veðrið var svo gott. Þau áttu að fljúga heim þennan dag en sökum óveðurs á Íslandi lengdist ferðin um sólahring. En við bara rétt svo hittum þau daginn eftir til að kveðja.
Helgina eftir komu Hafdís og Bosko í kaffi en þau voru í Aarhus að skipta peysu þannig að sjálfsöðgu kíktu þau við.
Við keyptum okkur svo ferð til Tékklands 22.-27.júní og ótrúlegt en satt þá er þetta golfferð! Ég vona að allir hafi mig í bænum sínum þar sem að undirbúningurinn gengur ekkert rosalega vel hjá mér fyrir þessa ferð.
Apríl var þokkalegur heimsóknarmánuður en í lok apríl kom tengdapabbi í nokkra daga. Með honum fylgdi kjöt til að setja í frystinn og svo alvöru íslenskt lambalæri og það sem mér fannst magnað var að þetta var allt enn gegnfrosið eftir að hann flaug til Köben og keyrði hingað.
Á meðan Daníel var að vinna fór ég í bíltúr með tengdapabba til Randers að kaupa batterí. Þegar Daníel var búinn að vinna fórum við með honum á Aarhus streetfood og ég held það þurfi engan sérfræðing til að giska hvað ég fékk mér að borða í þetta sinn, jújú franskarnar. Ég er viss um að einhver sem lesi þetta fari að gera sér ferð til að smakka þessar franskar. En við fórum svo á Plan B vínbarinn sem kannski einhverjir muna eftir en við vorum reglulega þar fyrsta árið okkar hérna en höfum lítið farið síðan þannig það var gaman að koma þangað aftur.
Daginn eftir fór ég í annan bíltúr með tengdapabba að fara með eitthvað dót einhvert en það tók ca 2 tíma og svo fengum við okkur pizzu áður en við fórum í nokkrar genbrug búðir og löbbuðum svo í Bruun Rasmusen uppboðshúsið til að skoða. Við settumst svo út hjá kaffihúsi en það var ekkert eðlilega gott veður og biðum eftir Daníel. Þegar hann kom fórum við svo upp á Salling rooftop í drykk og síðar fórum við á Royal Indian í mat sem er alltaf jafn góður. Við enduðum svo kvöldið á að fara í golfherminn.
Daginn eftir var heimför hjá honum frá Köben þannig að við græddum far til Vejle þar sem við vorum að fara eyða helginni hjá Hafdísi og Bosko, meira um það næst.
Annars var apríl bara vinna, golfæfingar og hlaup. Virkilega góður og skemmtilegur mánuður! Allt gengur vel hjá Daníel í vinnunni og bara lífið er næs.
Takk og bless
-María
































































































































