Jan/feb/mars 2026

Daman - 7. April 2026

Ég er að skrifa sameiginlega færslu fyrir janúar, febrúar og mars af því að það gerðist svo lítið í þeim mánuðum að ég hef ekki nennt að hafa fyrir því að skrifa.

Janúar:

Byrjun janúar fór náttúrulega bara í að lenda, taka upp úr töskum og að koma öllu dótinu fyrir sem við tókum með frá Íslandi. Svo byrjaði bara vanalega lífið með vinnu og þess háttar. Við byrjuðum að mæta í golfhermi, eða öllu heldur Daníel byrjaði að mæta og ég mætti með í einhver skipti. Í eitt skiptið ákvað ég að slá með en í önnur tók ég bara lesbrettið með og við sameinuðum áhugamálin okkar.

Við Írena fórum í eina bras vinnuferð þar sem við vorum m.a. að fara með dót á „sorpu“ frá Skor en staðurinn er svo mikið niðri í bæ að það er hægara sagt en gert að flytja dót til og frá. Eitt af því sem við fórum með var ónýtt sjónvarp en svo án gríns svona viku seinna var annað sjónvarp skemmt (fólk án gríns kastar pílum í sjónvarpið?) og það er bara enn á Skor haha.

Ugh ég fór líka til tannlæknis þar sem þurfti að laga 2 tennur og ég borgaði fyrir það ca 86.000 íslenskar krónur og ég þurfti að segja nei við að vinna á leikskólanum sem þýddi 20.000 í tekjutap svo já þetta var vont í veskið.

Móður amma og afi Daníels komu svo í heimsókn einn daginn ásamt Hafdísi, en þau höfðu verið á handboltalandsleikjunum í Svíþjóð og komu svo yfir til Dk í heimsókn. Það var yndislegt að þau gátu kíkt í heimsókn og við buðum þeim upp á heimagerða pizzu.

Talandi um handbolta landsleikina að við Daníel höfum undanfarin ár verið inni á appi þar sem maður er að giska á úrslit leikjanna. Og í ár endaði ég í 3 sæti af öllum þeim sem voru að taka þátt í þessu á Íslandi!!

Við fengum einnig aðra heimsókn þökk sé handboltanum. En þar sem að Ísland komst í milliriðilinn voru þeir að spila í Herning sem er bara ca klst frá okkur. Tengdapabbi og Kjartan náðu miða á leikina þannig þeir hoppuðu í næsta flug til Dk þannig við fengum líka stutta heimsókn frá þeim þennan janúarinn.

Febrúar:

Í febrúar náði einhver hundleiðinleg flensa, eða kannski covid? okkur en þó lenti Daníel mikið verr í henni. Ég var bara svona alvöru lasin í 1 dag en samt alveg slöpp í viku. Daníel lenti í því að verða veikur, betri þannig hann mætti í vinnu og varð svo fárveikur. Hann var með háan hita í 3 daga en það munaði hálfum degi að ég hefði reddað Green Mobility bíl og keyrt hann upp á læknavakt. En hann fór hæst upp í 39,49 og við miðuðum við að ef hann færi yfir 39,5 myndum við athuga með lækni, en við mældum hann á svona hálftíma/klukkutímafresti.

Hann náði að verða hressari, alls ekki 100% góður en mikið betri fyrir bolludagskaffi en við vorum búin að bjóða Hafdísi, Bosko, Írenu og Sofie. Það heppnaðist mjög vel en ég gerði alveg alltof mikið af rjóma, gerði 4 tegundir og það var borðað mjög lítið af honum en hann var samt mjög góður. Komumst bara að því að eiginlega ekkert okkar er eitthvað svakalega fyrir rjóma á bollur. Fyrir áhugasama var þetta venjulegur, jarðarberja, dumle og hvítt toblerone.

Við gerðum okkur dagamun eitt kvöldið í febrúar en við fórum í fordrykk á stað sem stendur cocktails utan á en það voru svona 5 kokteilar í boði haha og þeir voru bara skítsæmilegir. En við fórum svo út að borða á ítalskan stað sem heitir Amalfi en við vorum að nýta gjafabréf sem við höfðum fengið í jólagjöf frá tengdamömmu. Pizzurnar voru virkilega góðar og ekki skemmdi fyrir að kokteilarnir voru á 75 danskar! Munum 100p fara þangað aftur.

Mars:

Í mars komu Hafdís og Bosko í kaffi eitt sinn og að sjálfsögðu fékk Hafdís snickerskökuna

Shit á föstudaginn 13.mars var ég að vinna og vaktin var án gríns cursed. Það var bara endalaust allt að bila og okkur leið eins og vaktin hefði verið 27 klukkutímar. En þetta reddaðist allt á endanum og thank god ég var að vinna með Írenu sem tæklaði lang flest af þessu. Það sem var líka thank god var að flestir ef ekki bara allir voru mjög næs, þannig það var mikið vesen á tækninni en ekki fólkinu.

Við Írena hlupum 16km sem er lengsta hlaupið okkar til þessa en við þurfum að fara bæta í lönguhlaupin af því að þegar þetta er skrifað eru bara rétt rúmir 2 mánuðir í hálfmaraþonið.

Í lok mars fórum við Daníel á safn sem snýst um Danmörku í seinni heimsstyrjöldinni. Það var mjög áhugavert en samt alltaf jafn átakanlegt að lesa um þetta allt.

31.mars komu svo Sara og Reynir í heimsókn en ég ætla að skrifa um það í aprílfærslunni, sem guð má vita hvenær verður skrifuð...

Það sem var pínu skrítið við þennan mars var að við fórum ekki til Íslands en við gerðum það síðust 2 ár. Bæði fórum við til Íslands í mars af því Icelandair bauð okkur á vorhátíðina en Dmg er ekki að vinna þar lengur og svo tókum við standby um páskana en við erum náttúrulega ekki með þá miða lengur haha.

Annars er allt bara gott að frétta, Daníel er mættur aftur til vinnu eftir páskafrí en ég er ekki að vinna mikið á leikskólanum af því að samkvæmt nýju stýrunni þá kosta ég of mikið þar sem ég er menntaður kennari. Við erum samt bara að tala um að munurinn eru 1000 íslenskar krónur á tímann. En ég er þá bara að leita af og sækja um vinnur.

Sorry með að 90% myndanna sé matur, það var bara ekkert annað að gera í vetur.

Takk og bless

-María

image-jan-feb-mars-2026
image-0image-1image-2image-3image-4image-5image-6image-7image-8image-9image-10image-11image-12image-13image-14image-15image-16image-17image-18image-19image-20image-21image-22image-23image-24image-25image-26image-27image-28image-29image-30image-31image-32image-33image-34image-35image-36image-37image-38image-39image-40image-41image-42image-43image-44image-45image-46image-47image-48image-49image-50image-51image-52image-53image-54image-55image-56image-57image-58image-59image-60image-61image-62image-63image-64image-65image-66image-67image-68image-69image-70image-71image-72image-73image-74image-75image-76image-77image-78image-79image-80image-81image-82image-83