Maí+júní 2026

Daman - 7. July 2026

Jæja ég er í smá skrifskuld og því verður þetta sameiginleg færsla fyrir maí og júní þrátt fyrir að það gerðist alveg mikið í báðum mánuðum. En þetta verður þá bara langt.

Kannski fyrsta sem ég kem á framfæri fyrir þá sem nenna ekki að lesa nema örstutt og vilja svo bara skoða myndir: Ég er komin með vinnu! Byrja 1.ágúst í 80% stöðu hjá Aarhus International School sem íþróttakennari+stuðningur+activity hour+frístund. Er mjög pepp að byrja og komast inn í allt en mér finnst rosa gróft að ég mæti 31.júlí til vinnu þar sem það er svona nýliðadagur. Svo 3.ágúst mæta kennarar til vinnu og svo krakkarnir 10.ágúst á meðan á Íslandi er skólasetning í kringum 24.ágúst. En þetta er bara eitthvað sem maður þarf að venjast í nýju kerfi. En allt í allt er ég mjög spennt að byrja í rútínu vinnu og ég mun alveg sakna þess að vinna á Skor en ég held ég bara meiki ekki að vinna á báðum stöðum.

En þá að maí. Síðasta færslaði endaði á heimsókn tengdapabba og að við fengum far til Vejle til Hafdísar og Bosko en við eyddum helginni þar. Við borðuðum grillmat fyrsta kvöldið og vorum að skála fyrir því að Hafdís væri komin með vinnu hjá Kolding kommune. Morguninn eftir löbbuðum við í amazing veðri að loppumarkaði sem var úti en það var pínu fyndið hvað við vorum fljót að skoða og fundum ekkert því þetta var bara svona fólk að selja úr geymslunni sinni. En við keyrðum svo til Kolding í kaffi hjá Bangsa og fjölskyldu hans. Alltaf notalegt að koma þangað. Um kvöldið elduðum við (strákarnir) háklassa íslenskt lambalæri sem tengdapabbi kom með en það er úr sveitinni hjá föður ömmu og afa Daníels. Hafdís sá um meðlætið og ég sat bara eins og prinsessa og var gagnslaus. Þetta var ekkert eeeeðlilega gott en eins og hefur komið nokkrum sinnum fram í blogginu í gegnum tíðina að þá borða ég sjaldan jafn mikið og af íslensku lambakjöti. Við vorum svo bara að sötra og spila restina af kvöldinu. Á sunnudeginum fórum við svo á loppumarkað sem er alvöru markaður sem var mjög gaman að skoða og síðan tókum við lestina heim. Mjög næs helgi.

AGF sem er fótboltaliðið hér í Aarhus vann svo dönsku deildina í fyrsta sinn í 40 ár! Það að segja að það hafi verið stemning og fagnaðarlæti í bænum er vægt til orða tekið en við lögðum ekki í það að fara niður í bæ og fylgdumst bara með þessu í sjónvarpinu.

Ég var svo með Holter mæli til að athuga aðeins með hjartað í mér en það kom ekkert út úr því og ég er alveg búin að vera góð þannig það er all good. En mikið svakalega fannst mér pirrandi að vera með þetta.

Mjög random eftir eina vakt komu Mathias og Eiður heim til okkar (Skor lokar 2 um nóttu) og það var mjög skemmtilegt en þeir voru alveg til 5. Það væri ekki neitt frásögufærandi svosem nema af því að Eiður var svo að opna Skor klukkan 12:30 og Mathias að mæta kl14. Við Daníel kíktum á þá eftir að þeir opnuðu og heilsan þeirra hefur alveg verið betri hahaha en þetta var gaman.

Við buðum svo Írenu og Sofie í gúllas en gúllasið sem Daníel gerir er fáranlega gott. Veit að fólk hugsar kannski ekkert Mmm þegar það heyrir gúllas en það verður bara að smakka þetta áður en það fær að dæma.

Toppurinn á þessum núþegar skemmtilega maímánuði var örstutt ferð til Íslands en við flugum föstudagskvöld til landsins og svo aftur til baka sunnudags eftirmiðdegi. En ástæða ferðarinnar var að mamma og Siggi voru að halda upp á sameiginlegt fimmtugsafmæli sitt á laugardeginum. Þrátt fyrir stutta ferð náðum við (eins og vanalega) að gera slatta. Tengdapabbi náði í okkur í kringum miðnætti á föstudeginum og við gistum þar. Daníel notaði svo laugardaginn til þess að funda tengt verkefnum sem hann er að vinna að í gegnum sitt eigið fyrirtæki. Sara náði í mig og við fórum að hjálpa við að græja fyrir afmælið, sækja dót og svona. Eftir það fórum við á Subway og við borðuðum það hjá Ömmu Ingu. Við Daníel hittumst svo í Altis til að máta golfföt þar sem við vorum að fara til Tékklands í golfferð í júní. Ég fór svo heim til mömmu að græja mig og Daníel heim til pabba síns og svo hittumst við í afmælinu. Það voru fáranlega flottar veitingar og ég það fyndna er að þau skrifuðu í eventinn „léttar veitingar“, hafið það í huga þegar þið sjáið myndirnar af matnum. Svo var auðvitað nóg af fljótandi veigum líka og það var mjög gaman að Hanna Rakel og Sigga Ruth komu og voru að vinna í veislunni þannig ég náði að hitta þær líka. Við Sara ákváðum að í stað þess að halda ræðu að þá sömdum við ljóð um mömmu og Sigga sem heppnaðist mjög vel. Svo var rosa mikið dansað og það er bara alltaf svo gaman að vera með live tónlist. Ótrúlega skemmtilegt kvöld! Á sunnudeginum kíktum við á tengdamömmu og Binna áður en við fórum svo upp á flugvöll.

Í maí vorum við Írena mjög duglegar að hlaupa en svona viku áður en við fórum til Íslands byrjaði ég að fá illt í hnéð við að hlaupa þannig ég hvíldi alveg vel. Þannig í fyrripart júní hljóp ég alls ekki mikið sem var frekar leiðinlegt. 

En samt 14.júní kláruðum við Írena hálfmaraþon í fyrsta sinn! Þetta var alveg upplifun og var í raun mjög skemmtilegt. Stemningin var mjög góð og það voru pepparar meðfram allri hlaupaleiðinni. Það var svo gaman að Daníel, Sofie og vinkonur þeirra poppuðu upp á nokkrum stöðum að hvetja, það gaf auka kraft. Mér leið vel mest allt hlaupið en í kringum km 13 settum við í okkur airpods til að peppa okkur meira áfram og þá var ég líka aðeins byrjuð að finna í hnénu. Á milli km 19 og endamarkinu reyndi Írena að drepa mig en við höfðum svona skipst á að vera í hlaupastuði og „draga“ hvor aðra áfram en þarna var ég gott sem búin og illt í hnénu og þá ákveður hún að við aukum hraðann. Það var ógeeeð og ég hélt í við hana þar til alveg í lokin þá sagði ég henni að hlaupa áfram og ég var bara að hugsa um að klára og því kláraði hún 17.sekúndum á undan mér haha. En við vorum báðar undir 2:15 sem við vorum bara mjög sáttar með og við vitum að við getum bætt okkur næst þegar við munum hlaupa hálft.

En þar með er ekki allt búið tengt hlaupinu þar sem að þegar við erum Ný búnar sér Írena mann í 66°norður peysu og hún hugsar hmm þetta er mjög líkt Sigga. Svo horfi ég upp og er bara What hvað er hann að gera hérna og svo kemur mamma líka og ég er bara WHAT THE FUCK er að gerast hahahah. Hafa verður í huga að ég er með svona 3 starfandi heilasellur eftir þetta hlaup og ég er bara wtffff??? En það var SVO gaman að sjá þau en ég held þetta sé mesta surprise sem ég hef lent í!!

Það sem var samt frekar óheppilegt er að Siggi var bara full on lasinn og Daníel var ansi slappur líka. En Daníel fór samt í vinnuna á mánudeginum og Siggi og mamma komu í rúnstykki. Daníel tók samt bara hálfan dag í vinnunni og vann svo rest heima þannig hann náði að hitta okkur aftur þarna. Við mamma skutluðum svo Sigga upp á hótel og leyfðum Daníel að vinna/hvíla sig í friði og við tókum á okkur að fara í Bilka. Mjög mikið á okkur mæðgur lagt. Við fórum svo í Ikea líka og ég keypti VERSTU kökusneið sem ég hef smakkað og safinn sem ég keypti líka var ógeð. Ég er enn matsár út í þessa köku. En við ákváðum svo að það væri auðveldast að fara bara í Storcenter Nord á pizzastaðinn þar því mamma var búin að vera cravea pizzu og ég er alltaf game í pizzu. Hún fór svo upp á hótel til að athuga með Sigga og ég heim að checka á Daníel. Við kvöddumst svo bara þarna því að þau voru morguninn eftir að fara rúlla til Köben. Mjög stutt stopp í Aarhus en fáranlega gaman að þau hafi komið svona óvænt!

Við Írena ásamt Eddu hlupum svo viku seinna 10 km í kvennahlaupinu. Þar var sko alls ekkert tímamarkmið og átti bara að vera chillað og gaman, sérstaklega af því það var alveg frekar heitt. Við fengum flotta gjafapoka og bol en svo þurfti ég að drífa mig heim af því við Daníel áttum lest fljótlega eftir hlaupið. Þegar ég er komin heim er allt í einu dinglað og þá eru þetta stelpurnar með verðlaun sem ég fékk þegar númerið mitt var dregið. En ég fékk svona blow and style hártæki frá Remington, skemmtilegt að vinna.

Ég græjaði mig svo bara og við Daníel tókum letbahninn upp á lestarstöð og tókum svo lestina til Köben en við ákváðum að vera þar í 1 nótt. Ef við hefðum ekki gert það hefðum við þurft að taka lestina 6:20 um morguninn. Hótelið var bara 2 stjörnu og nálægt hótelinu en það var samt furðulega gott miðað við það og bara með fínum morgunmat. Við áttum svo flug til Tékklands í hádeginu og það var bara klukkutími en það var samt ekki næs flug því það var alltaf að svona pompa létt niður, smá eins og innanlandsflug á Íslandi að vetri til. En við komumst á leiðarenda og hittum þar pabba, Guðrúnu, Sigga og Ástu. Jan (manager hótelsins) og Patricie (konan hans) komu og sóttu okkur á einum van og einum venjulegum bíl en það var nauðsynlegt til að koma öllum farangri og golfsettum fyrir.

Við fengum mjög stórt herbergi með baðkari í miðju herberginu og við actually notuðum það. Það var samt ekkert miðað við herbergið sem pabbi og Guðrún voru í en það var m.a. með svona 12 manna saunu inni í því og aðgang að kaldri laug úti. Þennan fyrsta dag tóku þau öll 9 holur og ég ákvað að vera bara bílstjóri á golfbíl en mér fannst mjög fun að keyra þá. Þegar við fórum að borða var Jan búinn að útbúa matseðla á íslensku sem sló í gegn hjá okkur. Við fórum svo aftur út á völl eftir dinner og þegar við vorum að keyra til baka að þá varð bíllinn hjá pabba og Guðrúnu rafmagnslaus þannig Daníel þurfti að ýta þeirra bíl áfram en samt sem betur fer ekki of langt.

Næsta dag ákvað ég að fara bara með fyrri 9 og ég var alveg actually eitthvað að slá í það skipti. En þegar þau tóku seinni 9 ákvað ég að bara fara í bað og slappa af sem mér fannst mjög næs. Ef mig misminnir ekki held ég að þau hafi svo tekið aðrar 9 þannig þau tóku 27 holur þennan dag.

Þriðja daginn var ég all in þar sem að við stelpurnar vorum að spila saman (og allar í stíl, mikilvægt) og við vorum að spila Texas þannig að besti boltinn var alltaf valinn og þá gerði maður stundum gagn og að þótt maður fokkaði upp skipti það ekki máli þannig það var mjög gaman. Um kvöldið voru þau svo búin að græja fyrir okkur tékkneskan mat úti þar sem við grilluðum pylsur á báli og ég sem borða vanalega ekki pylsur borðaði!!

Föstudagurinn var svo síðasti dagurinn sem við Daníel gátum spilað golf og holy shit það var heitt. Maður drakk endalaust vatn og electrolytes en þegar kom að 11. og 12. holu gat ég ekki spilað heldur sat inni í golfbíl með kalt handklæði á hnakkanum og ofan á höfðinu af því ég var nánast farin að sjá ofsjónir af hita. En eftir að ég náði að kæla mig þokkalega niður gat ég haldið áfram að spila, en samt enn að kæla á mér hnakkann. Eftir kvöldmat fórum við svo í ljósagolf en við spiluðum bara 3 holur eða eitthvað því maður vissi aldrei hver átti hvaða kúlu og svo slökknaði ljósið eftir 8 mínútur þannig maður fann ekki alltaf kúluna því við vorum svo mörg að slá. En það var skemmtilegt að enda þetta á svona aðeins öðruvísi.

Á laugardeginum áttum við flug 15:30 þannig við vorum sótt af þjónustu og fórum upp á völl vel fyrir hádegi þar sem það er svona 1:30 – 2 tímar að keyra á völlinn. Þannig við kvöddum bara og svo fóru þau að spila golf í sko óeðlilegum hita, held að hann fór upp í 40 gráður. Þannig ég var lúmskt fegin að vera fara í Danmerkur hita þrátt fyrir að þennan morguninn vaknaði ég og hugsaði „ég væri til í að spila golf í dag“. Mjög skemmtileg og vel heppnuð ferð í góðum félagsskap en það var alveg helvíti heitt.

Við Daníel gistum á öðru hóteli í Köben þessa nótt en hann ætlaði að hitta fyrrum vinnufélaga sinn og ég Elísabetu. Hótelið var mjög vel staðsett upp á að við tókum bæði bara metroinn. Við Elísabet borðuðum pizzu úti á svölum hjá henni og Daníel kom svo til okkar í smá áður en við fórum heim.

Við tókum svo lestina heim daginn eftir og það er alltaf jafn næs að koma heim sama hversu gaman er að ferðast.

Þannig já þetta eru búnir að vera frábærir mánuðir en við erum mjög spennt fyrir að fara í 2 vikur til Íslands í júlí. En það er fríið hans Daníels þ.e. Tékkaland og Ísland. Svo náum við 1 viku heima áður en ég byrja að vinna! Annars er bara allt gott að frétta.

Takk og bless

María

image-mai-juni-2026
image-0image-1image-2image-3image-4image-5image-6image-7image-8image-9image-10image-11image-12image-13image-14image-15image-16image-17image-18image-19image-20image-21image-22image-23image-24image-25image-26image-27image-28image-29image-30image-31image-32image-33image-34image-35image-36image-37image-38image-39image-40image-41image-42image-43image-44image-45image-46image-47image-48image-49image-50image-51image-52image-53image-54image-55image-56image-57image-58image-59image-60image-61image-62image-63image-64image-65image-66image-67image-68image-69image-70image-71image-72image-73image-74image-75image-76image-77image-78image-79image-80image-81image-82image-83image-84image-85image-86image-87image-88image-89image-90image-91image-92image-93image-94image-95image-96image-97image-98image-99image-100image-101image-102image-103image-104image-105image-106image-107image-108image-109image-110image-111image-112image-113image-114image-115image-116image-117image-118image-119image-120image-121image-122image-123image-124image-125image-126image-127image-128image-129image-130image-131image-132image-133image-134image-135image-136image-137image-138image-139image-140image-141image-142image-143image-144image-145image-146image-147image-148image-149image-150image-151image-152image-153image-154image-155image-156image-157image-158image-159image-160image-161image-162image-163image-164image-165image-166image-167image-168image-169image-170image-171image-172image-173image-174image-175image-176image-177image-178image-179image-180image-181image-182image-183image-184image-185image-186image-187image-188image-189image-190image-191image-192image-193image-194image-195image-196image-197image-198image-199image-200image-201image-202image-203image-204image-205image-206image-207image-208image-209image-210image-211image-212image-213image-214image-215image-216image-217image-218image-219image-220image-221image-222image-223image-224image-225image-226image-227image-228image-229image-230image-231image-232image-233image-234image-235image-236image-237image-238image-239image-240image-241image-242image-243image-244image-245image-246image-247image-248image-249image-250image-251image-252image-253image-254image-255image-256image-257image-258image-259